Kelduhverfi

Þetta er vefur Kelduhverfis

Ferðaþjónusta


Ferðaþjónusta í Kelduhverfi tengdist áður fyrr umferðinni um þjóðveginn milli Norður- og Austurlands, sem var um Kelduhverfi og meðfram Jökulsá að austan. Þá var rekin gisti- og veitingaþjónusta í Lindarbrekku um árabil. Eftir að Jökulsá var brúuð við Lindhöfða hjá Grímsstöðum á Fjöllum 1947 færðist umferðin um Mývatnsöræfi og Mývatnssveit. Síðan hefur ferðaþjónustan fyrst og fremst tengst náttúruskoðun í sveitinni og þá einkum skoðun furðusmíða Jökulsár á Fjöllum. Nú er þar  Þjóðgarðurinn í Jökulsárgljúfrum, sem nú heitir Vatnajökulsþjóðgarður, sem var stofnaður fyrir 30 árum og hefur aðstaða ferðamanna verið bætt verulega eftir tilkomu hans.

Í Ásbyrgi er bensínsala, verslun og veitingaþjónusta sem opin er allt árið.


Á undanförnum árum hafa veiðimenn í auknum mæli heimsótt Kelduhverfið, bæði til veiða í Litlá og einnig á haustin í gæsa- og rjúpnaveiði.


Fjölskrúðugt fuglalíf dregur einnig að sér fleiri og fleiri ferðamenn.

Tvær bændagistingar eru í sveitinni,  í Keldunesi og á Hóli auk ferðaþjónustunnar í Skúlagarði þar sem er félagsheimili sveitarinnar.


Stutt er í sundlaug í Lundi í Öxarfirði, en þar er einnig sumarhótel og tjaldsvæði.


(mynd af Jóhanni Svarfdælingi (risa) og Ingibjörgu Indriðadóttur frá Lindarbrekku))

Nýjustu fréttir

  • Gauragangur í Skúlagarði

    Á næstunni - miðvikudagur 10.jan.07 15:14 - Lestrar 5574
     Unglingadeildin í Öxarfjarðarskóla sýnir Gauragang eftir Ólaf Hauk Símonarson föstudag 19. og laugardag 20.jan. Allur ágóði rennur í ferðasjóð nemenda.

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning