Fréttir
Ásbyrgismót
Á næstunni - föstudagur 9.júl.10 10:39 - Lestrar 444
Hið árlega Ásbyrgismót verður haldið nú um helgina 9.-11.júlí. Hefst það á föstudagskvöldið kl. 17:30 með pollamóti 11-12 ára í fótbolta.Einnig verður keppt í unglingaflokki (13-16 ára) þá um kvöldið en á laugardeginum hefst keppni með pollamóti 10 ára og yngri í fótbolta . Að því loknu hefst frjálsíþróttakeppnin kl 13, síðan ratleikur og um kvöldið verður kvöldvaka, bumbubolti, hoppukastalar og fleira.
Sunnudagurinn hefst á frjálsíþróttakeppni kl. 10 og lýkur mótinu á pæjumóti stúlkna 16 ára og yngri.
Til baka



