Skúlagarður

Það var árið 1953 sem Keldhverfingar hófust handa um að reisa skóla og félagsheimili fyrir sveitina. Byggingin reis í landi Krossdals austan við Litlá á lóð sem hjónin í Krossdal gáfu, þau Þórarinn Jóhannesson og Guðný Þórarinsdóttir. Byggingin tók nokkur ár enda mikið átak fyrir lítið sveitarfélag. Byggðist hún að verulegu leyti á fjár- og vinnuframlögum hreppsbúa enda einhugur um að koma húsinu upp. Hinn 9. ágúst 1959 var byggingin formlega vígð en nokkur starfsemi var þó hafin þar fyrr.
Í húsinu
var annars vegar heimavistarskóli fyrir hreppinn og hins vegar félagsheimili, sem Ungmennafélagið Leifur heppni, Kvenfélag Keldhverfinga og Kelduneshreppur
áttu. Skólinn og félagheimilið notuðu að hluta til sama húsnæðið.
Skólahald hófst í Skúlagarði haustið 1957 er barnaskóli hreppsins var fluttur þangað. Í nokkur ár var þar starfræktur unglingaskóli. Um það bil sem grunnskólalögin tóku gildi var skólaskipan breytt á þann veg að í Skúlagarði var starfræktur 1.-6. bekkur grunnskóla fyrir Kelduhverfi og Öxarfjörð en unglinganámið flutt í Lund, en þá höfðu Keldunes- Öxarfjarðar- og Presthólahreppur tekið upp samstarf um skólahald. Vegna fækkunar íbúa í Kelduhverfi hefur skólahald nú verið lagt niður í Skúlagarði, en sameiginlegur grunnskóli fyrir Keldunes- og Öxarfjjarðarhreppa er rekinn í Lundi í Öxarfirði.
Austan við
húsið í Skúlagarði er afgirtur reitur þar sem plantað hefur verið allmiklu af trjám. Þar á hæð er stytta sem var
reist til minningar um Skúla Magnússon, landfógeta (oft nefndur faðir Reykjavíkur). Félagsheimilið er kennt við hann.
Skúlagarður hefur alltaf þjónað sem miðstöð menningar- og samkomuhalds í Kelduhverfi. Þar voru fræg sveitaböll áður fyrr, em sumir vildu ekki kenna við menningarviðburði. Nú er aðalhátíð ársins þorrablót sem haldið er aðra helgina í Þorra.
Þar ríkir ávallt mikil gleði og stemmning enda allt skemmtiefni heimatilbúið. Kvenfélagið og Búnaðarfélagið skiptast á um að sjá um blótið.
Í dag er rekinn sem gististaður fyrir ferðamenn í Skúlagarði og er Ólöf Sveinsdóttir í Árdal sem stýra þeim rekstri.



