Kelduhverfi

Þetta er vefur Kelduhverfis

Sagan

UPPHAF  BYGGÐAR.

Landnáma rekur upphaf byggðar norrænna manna í Kelduhverfi líkt og í öðrum héruðum landsins.  Samkvæmt frásögn hennar voru landnámsmennirnir fjórir.  Vestast var Böðólfur Grímsson, sem reyndar nam land á Tjörnesi en landnámið náði austur að Ósi (Lónsósi).  Sonur hans, Skeggi Böðólfsson, “nam Kelduhverfi til Kelduness og bjó í Miklagarði”.  Þá kom Ljótur óþveginn “er nam Kelduhverfi upp frá Keldunesi”.  Síðastur er nefndur til sögunnar Önundur Blæingsson sem “nam Kelduhverfi frá Keldunesi og bjó í Ási”.

Í bók sinni “Hverra manna” fer Árni Óla, blaðamaður, yfir landnámið í Kelduhverfi og færir fyrir því gild rök að nokkurs ókunnugleika gæti í frásögn Landnámu af landnámi sveitarinnar. Hann telur að Böðmóður gerpir, bróðir Böðólfs, hafi numið Fjallaland, og búið á Fjöllum.  Þá telur hann að sonur hans, Grímúlfur, hafi numið Víkingavatnsland og telur að bær hans hafi upphaflega verið nefndur Hof.  Síðan nam Skeggi Böðólfsson Garðsland og bjó í Miklagarði, Ljótur óþveginn nam Keldunesland og bjó í Keldunesi og loks nam Önundur Blæingsson Ásland og bjó í Ási.  Árni Óla vitnar í dr. Guðbrand Vigfússon og telur að landnámið hafi hafist í kringum árið 920.

Landnámsmennirnir sem helguðu sér land í niðursveitinni á þrem vestustu jörðunum voru náskyldir og Árni Óla telur að Ljótur óþveginn og Önundur Blæingsson hafi verið úr samherjahópi þeirra frænda.  Hann telur það merkilegt að þessi upphaflega skipting jarða í Kelduhverfi hafi haldist fram til þessa dags, en landamerki eru að mestu dregin beinum línum, enda ekki við nein “náttúruleg” landamerki að styðjast.

Jarðir sem síðar byggðust í Kelduhverfi, byggðust út frá þessum móðurjörðum án þess að upphafleg landamerki  móðurjarðanna breyttust.

FRÆNDUR  TIL  FORNA     

Þeir bræður Böðólfur og Böðmóður og synir þeirra, Skeggi og Grímúlfur, voru virðingarmenn og stórra ætta.  Grímólfur gamli, afi þeirra Böðólfs og Böðmóðs, var við hirð Kjarvals Írakonungs og Kjarval gaf honum Kormlöðu dóttur sína.  Kjarval Írakonungur var því langafi þeirra.  Mikill skyldleiki var því með Keldhverfingum og Eyfirðingum til forna, þar sem önnur dóttir Kjarvals Írakonungs, Rafarta, var móðir Helga magra landnámsmanns í Kristnesi og Kjarval Írakonungur því  afi hans.

Þar að auki var seinni kona Böðólfs, Þorbjörg hólmasól dóttir Helga magra og Skeggi Böðólfsson fékk Helgu sem  var dótturdóttir Helga magra.  

Þá voru Ölfusingar einnig nátengdir, enda var Þorgrímur afi Þórodds goða á Þóroddsstöðum í Ölfusi bróðir Gríms Grímólfssonar og því einnig dóttursonur Kormlaðar Kjarvalsdóttur Írakonungs.  Loks tengdust Keldhverfingar Hrútfirðingum, þar sem Bálki Blæingsson er nam Hrútafjörð var bróðir  Önundar Blæingssonar er nam Ás í Kelduhverfi.

(Mynd fengin að láni frá Sögusetrinu Hvolsvelli)

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning