Aldarminning Keldunesbræðra
Þann 19.júní 2004 var haldið upp á aldarminningu þeirra Keldunesbræðra, Jóhannesar, Sigtryggs og Karls Helga Jónssona. Margt var um manninn í Keldunesi enda öllum Keldhverfingum boðið auk ættingja og vina. Það voru fjölskyldur bræðranna og ábúendur í Framnesi sem stóðu fyrir hátíðinni sem fram fór með miklum glæsibrag. Hátíðahöldin stóðu frá kl. fimm síðdegis og fram á nótt.
Í Framnesi var sett upp sýning með gömlum myndum og höfðu gestir gaman af að skoða þær og rifja upp gamlar og góðar endurmynningar.
Hér fer á eftir stutt æviágrip bræðranna.
Þeir bræður voru synir hjónanna Jóns Kristins Guðmundssonar frá Svertingsstöðum í Kaupangssveit og konu hans Ingibjargar Jóhannesdóttur pósts frá Birningsstöðum. Voru þeir því af Eyfirskum og þingeyskum bændaættum komnir.
Jón og Ingibjörg bjuggu á nokkrum stöðum í Þingeyjarsýslum áður en þau fluttu að Keldunesi, m.a. í Svínadal,
heiðarbýli suður af Vesturdal, sem nú er innan þjóðgarðsins í Jöklsárgljúfrum.
Þau flytja í Keldunesi vorið 1920 með sex börnin sín, öll komin af barnsaldri, þrjá syni og þrjár dætur, en dæturnar voru
Þórey, Kristrún og Kristín. Kristrún giftist í Suður-Þingeyjarsýslu, Þórey giftist Árna Jóhannssyni
frá Arnarnesi og bjuggu þau á Meiðavöllum. Kristín giftist Indriða Hannessyni frá Kelduneskoti og reistu þau nýbýlið
Lindarbrekku.

Jóhannes var elstur bræðranna, fæddur 18.ágúst 1899 í Glaumbæ í Reykjadal.
Hann stofnaði nýbýlið Framnes út úr Keldunesi og bjó þar með konu sinni Þuríði Sigurgeirsdóttur frá Hóli
í Kelduhverfi. Þau eignuðust tvö börn Ingibjörgu og Hauk.
Auk búskapar stundaði Jóhannes mikið akstur og sá m.a. um akstur á skólabörnum á efri árum.
Jóhannes lést árið 1979.
![]() Sigtryggur |
![]() Karl Helgi |
Tvíburabræðurinr Sigtryggur og Karl Helgi voru fæddir 13. febrúar 1904 að Múla í Aðaldal.
Um 1940 tóku þeir bræðir við búsfórráðum í Keldunesi af foreldrum sínum og höfðu þau hjá sér þar
til þau létust, Ingibjörg 1942 og Jón 1950.
Þeir tvíburabræður ráku félagsbúskap í Keldunesi ásamt eiginkonum sínum. Helgi kvæntist Þóru Steinunni Stefánsdóttur frá Arnarstöðum í Núpasveit og eignuðust þau sex börn, Loga Kristínu Ingibjörgu, Oktavíu Stefaníu, Bryndísi, Jón Tryggva og Helga Þór.

Börn Karls Helga ásamt móðursinn Þóru þann 19. júní 2004
Sigtryggur kvæntist Rakel Sigvaldadóttur frá Gilsbakka í Öxarfirði og ættleiddu þau son sinn Sturlu. Skömmu efetir að Sigtryggur kvæntist Rakel byggðu þeir tvíburabræður nýtt íbúðarhús með tveimur íbúðum, Keldunes I og Keldunes II.

Sturla Sigtryggsson með móður sinni Rakel þann 19. júní 2004.
Þeir bræður voru með fyrstu bílstjórum í sýslunni og stunduðu um skeið vöruflutninga fyrir bændur, vegavinnu og fólksflutninga jöfnum höndum.
Helgi var um langt árabil gangnaforingi í göngum á Svínadal og réttarstjóri í Tjarnarrétt. Tók Haukur sonur Jóhannesar við því starfi eftir fráfall Helga. Eftir að Jón og Ingibjörg fluttu í Keldunes og allt þar til félagsheiilið Skúlagarður var byggt var þingstaður hreppsins í Keldunesi og var þar því löngum mjög gestkvæmt.

Einnig var um margra ára skeið útibú Kaupfélags Norður-Þingeyinga í gamla íbúðarhúsinu í Keldunesi og var
Sigtryggur útibússtjóri þar. Nú rekur Sturla sonur Sigtryggs og kona hans Bára Siguróladóttir glæsilegt gistiheimili í
þessu gamla húsi.
Það má segja að bræðurnir hafi lifað tímana tvenna. Á barnsaldri fluttu foreldrar þeirra oft á milli jarða sem algengt var á þeim árum og á unglingsárum bjuggu þeir á síðasta heiðarbýli í Kelduhverfi og kynntust harðræði heiðarjarðanna, m.a. frostaveturinn mikla 1918. Sem ungir menn tóku þeir síðan þátt í iðnbyltingunni á Íslandi í hópi fyrstu bílstjóra í sýslunni. Í landbúnaði kynntust þeir hinum frumstæðu búskaparháttum sem tíðkuðust á fyrri hluta síðustu aldar og tóku síðan þátt í vélvæðingu hans.
Heimildir: Ólafur Stefánsson, minningargrein um Karl Helga í Íslendingaþáttum Tímans.
Aldarminning Keldunesbræðra eftir Þorfinn Jónsson






