Kelduhverfi

Þetta er vefur Kelduhverfis

Kirkja

GARÐSKIRKJA 

Keldhverfingar eiga kirkjusókn að Garði.  Áður fyrr var einnig kirkja í Ási, sem þjónað var af Garðsprestum að nokkru eða öllu leyti.  Í Ási er einnig forn grafreitur.

Á Fjöllum var bænahús fyrr á öldum, en aflagt fyrir 1703.  Ássókn var lögð undir Garðsókn 1816.  Garður var prestssetur a.m.k. frá 1370 og til 1880, en frá þeim tíma  hefur Garðsókn verið þjónað af Skinnastaðaprestum, þó sat séra Halldór Bjarnarson í Presthólum frá 1911 til 1926, en aðstoðarprestur hans, séra Sveinn Víkingur, sat í Garði frá 1922 til 1924.

Það kirkjuhús sem nú er í Garði, er að stofni til byggt 1890, úr timbri. Stærð þess er 10 ½ x 6m að grunnfleti og söngloft er í 1/3 þess.  Yfirsmiður byggingarinnar var Stefán Erlendsson, bóndi í Ólafsgerði.

 Gagngerar endurbætur hafa þó verið gerðar á kirkjunni síðar.  Má þar helst telja að steypt var utan um hana 1949, steypt við hana forkirkja og turn 1950 og þetta allt múrhúðað og klætt marmaramulning og hrafntinnu utan árið 1952. Leitt var rafmagn í kirkjuna árið 1962 og steypt í hana gólf 1970.

Altaristaflan í kirkjunni er all merkileg.  Þetta er kristsmynd, máluð af Sveinunga Sveinungasyni, vinnumanni í Lóni, 1903.  Kirkjan á marga góða gripi, sem flestir hafa verið gefnir til minningar um ástvini.

Þjónandi prestur í dag er séra Jón Ármann Gíslason, Skinnastað.

Fastur söngkór var stofnaður við kirkjuna árið 1945, undir stjórn Bjargar Björnsdóttur í Lóni og starfar hann enn.  Áður höfðu Vilborg Þórarinsdóttir Kílakoti og Árni Björnsson Lóni, æft kóra sem sungu við messugjörð.

 

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning