Kelduhverfi

Þetta er vefur Kelduhverfis

Jökulsárgljúfur

Fossvogur í HafragilsundirlendiJökulsárgljúfur og umhverfi þeirra hafa heillað margan ferðalanginn.  Fossasamtæða Jökulsár á Fjöllum með Selfoss, Dettifoss, Hafragilsfoss og Réttarfoss á sér fáa líka á jörðinni.  Stórkostlegt umhverfi Jökulsárgljúfra er mótað af vatni, eldum og ís.  Gífurleg hamfarahlaup eru talin hafa myndað og mótað gljúfur, gil, klappir og byrgi.  Frægust þeirra er Ásbyrgi.  Hljóðaklettar eru innviðir fornra eldstöðva sem Jökulsá hefur sópað öllu lausa gosefninu í burtu en litlu norðar standa Rauðhólar, hinir upprunalegu gjallgígar.  Í Hólmtungum fara saman miklar andstæður, ótal lækir og lindir renna þar út í beljandi, aurugt stórfljótið.  Í skjóli hamra og kletta þrífst fjölbreytt samspil  gróðurs og dýralífs.

Á síðunni er að finna margvíslegan fróðleik um Vatnajökulsþjóðgarð, sögu, náttúru, útivistarmöguleika og þjónustu sem gestum hans stendur til boða.  Njóttu þess að skoða og við hlökkum til að sjá þig.

Jökulsá á Fjöllum á upptök sín í Vatnajökli og rennur til sjávar í Öxarfjörð.  Við hálendisbrúnina lækkar landið og áin steypist í stórum fossum niður í gljúfrin sem eru við hana kennd.  Jökulsárgljúfur eru ein stærstu og hrikalegustu árgljúfur á Íslandi, um 25 km löng, ½ km á breidd og dýptin víða um eða yfir 100 m. 

Hafið samband.

jokulsargljufur@vatnajokulsthjodgardur.is


moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning