Kveðskapur
Hagyrðingakvöld
Hagyrðingakvöld var haldið í Skúlagarði kvöldið fyrir skírdag nú í vor.

Mættir til leiks voru alþingismennirnir Halldór Blöndal, Jón Kristjánsson og Steingrímur J. Sigfússon. Einnig frá vísnafélaginu Kveðanda þau Ingibjörg Gísladóttir og Ósk Þorkelsdóttir frá Húsavík og Þorfinnur Jónsson, Ingveldarstöðum.
Ingibjörg og Ósk eru systurdætur Þorfinns.
Stjórnandi var Ólafur G. Einarsson, fyrrv. forseti alþingis.
Um Ólaf G. kvað Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra:
Ólafur með harðan haus
af hlátri stendur á öndinni,
ekki er hann samt alveg laus
undan bláu höndinni.
Í byrjun kvöldsins leist Þorfinni ekki á blikuna að mæta alþingismönnunum og kvað:
Kjarkurinn dvínar af kvíða ég brenn
á knattvelli ljóðastandsins,
því þeir eru allir atvinnumenn
frá aðalspaugstofu landsins.
Þegar Ósk var spurð um ætterni kvað hún:
Heimskir reyna að hreykja sér
hátt og við það strita.
En ættin mín af öðrum ber
eins og flestir vita.
Aldrei ég gái í ættarbók
eflaust þó bæti skynið,
ættgöfgi mína ætíð jók
Ingveldarstaðakynið.
Halldór Blöndal fór með eftirfarandi vísur.
Hér voru brúkuð hestur og herfi
og hér voru áður kvíaból,
þar sem Katrín mikla í Kelduhverfi
komin er á veldisstól.
Í Kelduhverfi Katrín mikinn fer
og kann úr vöndu að ráða sýnist mér
fær bestu skáld vors lands í lið með sér
liðsauka sem dugir hvar sem er.
Um Kelduhverfið kvað Ingibjörg Gísladóttir:
Ung ég leit þann unaðsreit
umkringdan bergi hörðu.
Æ síðan fundist mín fæðingarsveit
fegursti staður á jörðu.
Um Kelduhverfið kvað einnig Jón Kristjánsson.
Það ískalda land við ysta haf,
er vorrar þjóðar besta hnoss,
sveitina fögru guð oss gaf
gættu hennar drottinn fyrir oss.
Steingrímur orti eftirfarandi um Halldór og Ólaf G.
Á Halldóri Blöndal er heljarkjaftur
þó halli hann undir flatt,
En Ólafur Garðar er genginn aftur
og gerir það nokkuð bratt.
Um Jón heilbrigðisráðherra orti Steingrímur.
Þó hann hreyfist hægt úr stað,
með hægðinni kemur ýmsu að.
Flestum er okkur hlýtt til hans
heilbrigðismálaráðherrans.
Um vegamál meðfram Jökulsá orti Halldór Blöndal.
Um fossinn hefur Einar ort
þann óð sem ég tel bestan.
Vegurinn verður annaðhvort
austan hans eða vestan.
Um sjálfan sig og ætt sína kvað Steingrímur.
Ég er að norðan, vitur, vænn
vandaðar kveð ég rímur.
Ég er rauður, ég er grænn,
Ég er Skallagrímur.
Í ættbókum ýmsir fundann,
arfinn; þó væri það puð.
Það eru allir undan,
einhverjum nema guð.
Á ætt minni veit ég allgóð skil
og óþarft það að kanna,
hana rek ég hreikinn til
Hávarðsstaðamanna.
Rifós veitti verðlaun fyrir að botna besta fyrripart, er hann orti Pétur Blöndal, blaðamaður. Þau hlaut Elísabet Ingólfsdóttir frá Mörk.
Kosningarnar koma brátt
kjósendurnir velja.
Allir flokka hafa hátt
himnesk lofort selja.
Eftir hagyrðingana kom fram Sævar Sigurgeirsson frá Ásbyrgi og skemmti gestum við mikla kátínu dágóða stund. Á eftir lék Strákabandið við góðan orðstýr, en það skipa þeir Jóel Friðbjörnsson, Ísólfsstöðum, Tjörnesi, Kristján Kárason, Ketilsstöðum, Tjörnesi, Kjartan Jóhannesson, Húsavík og Rúnar Hannesson, Húsavík.
Allir þessi skemmtikraftar gáfu vinnu sína og rann allur ágóði til viðhalds á Félagsheimilinu Skúlagarði, en alls söfnuðust tæpar 400 þús.kr.