Hóll
Ferðaþjónusta bænda á Hóli í Kelduhverfi
Á bænum Hóli hefur verið rekin hestaleiga frá árinu 1986 og bændagisting frá 1987. Boðið er upp á gistingu í heimahúsi í þremur tveggja manna herbergjum (án baðs) og einu eins manns, auk þess er 8 manna sumarhús til útleigu. Morgunmatur og kvöldverður eru í boði eftir óskum hvers og eins.
Gönguleiðir eru margar fallegar frá Hóli, m.a. niður að Skjálftavatni sem er yngsta stöðuvatn á Íslandi, í Hólshelli þar sem eitt sinn fannst Kristslíkneski og margar fleiri.
Eins og bæjarnafnið gefur til kynna, stendur bærinn á stórri aflíðandi hæð og er geysilega víðsýnt og fallegt útsýni frá bænum. Í austri sjáum við hina fallegu sveit Öxarfjörð sem kúrir undir fjöllunum Þverárhyrnu, Sandfelli og Hafrafelli. Í suðri blasir við hin grösuga og víðlenda afrétt Keldhverfinga og sjást m.a. fjöllin Eilífur, Hrútafjöll, Mófell, Gæsafjöll ofl. Í vestri er það Reykjaheiðin og Tjörnes sem afmarka útsýnið en í norðri er ekkert sem skyggir á þar sem himinn og haf mætast. Kvöldsólin er óvíða fallegri og hefur endurnært margan manninn sem gist hefur á Hóli.
Margskonar hestaferðir eru í boði, allt frá 1 klst upp í 2ja til 3ja daga ferðir um þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfrum og afréttarlönd Keldhverfinga.
Þá eru í boði 3ja- 4ra tíma hellaskoðunarferðir sem stundum hafa verið farnar sem miðnæturferðir og eru öllum ógleymanlegar sem í þær hafa farið.
Bærinn er aðeins 6 km frá Ásbyrgi, en þar verslun, golfvöllur að ógleymdum þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum. Sundlaug er í næsta nágrenni um 15 km akstur í Lund í Öxarfirði.
Nánari upplýsingar og pantanir á gistingu og/eða hestaleigu er í símum:
heimasímar: 465-2270 & 465-2353,
gsm: 846-3835 & 697-3812
e-mail: hrunda@ismennt.is
Verið hjartanlega velkomin!



