Keldunes
|
GISTIHÚSIÐ KELDUNESÍ Keldunesi er gistiaðstaða í sex tveggjamanna herbergjum með handlaug.
Að öðru leyti byggist aðstaðan á setustofu, sem má einnig nota sem veislusal, eldunaraðstöðu, þvottahúsi, baðaðstöðu og heitum potti. Á stórum svölum er grillaðstaða og gott útsýni yfir Skjálftavatn, þar sem er fjölskrúðugt fuglalíf.
Ef óskað er, býðst gestum veitingaþjónusta. Einnig tekur matselja að sér að útbúa skrínukost fyrir göngufólk og veiðimenn. Gestgjafar eru Bára Siguróladóttir og Sturla Sigtryggsson |
|
Keldunes II .
|
|
||
![]() |
|
||





