Kelduhverfi

Þetta er vefur Kelduhverfis

Skúlagarður.

 

FERÐAÞJÓNUSTAN  SKÚLAGARÐI.

Gistihús  og  veitingastaður.


Skúlagarður var byggður á árunum 1953-1959 sem heimavistarskóli og félagsheimili. Á síðari árum hefur húsinu verið breytt í notalegt gistihús.

Boðið er uppá gistingu í eins, tveggja og þriggja manna herbergjum. Í veitingasalnum er boðið uppá allar veitingar í mat og drykk.

Skúlagarður er í miðju Kelduhverfi, 12 km vestan Ásbyrgis. Fjarlægðin frá Húsavík er 50 km og frá Akureyri rúmir 140 km. Húsráðandi er Ólöf Sveinsdóttir.

Skúlagarður er opinn allan ársins hring.


Tjaldsvæði er einnig í Skúlagarði með eldhúsaðstöðu, snyrtingu og sturtu.

Upplýsingar og pantanir í síma 465-2280,  Fax: 465-2279 eða á  netfang: skulagardur@simnet.is

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning