Jökulsárhlaup
Jökulsárhlaup ársins 2010 verður haldið laugardaginn 24.júlí.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu hlaupsins: www.jokulsarhlaup.is

Jökulsárhlaup hefur verið haldið árlega frá árinu 2004. Venjulega eru þrjár vegalengdir í boði, 32,7km, 21,2 km og 13,2 km.
Sveitakeppni
Boðið er upp á þriggja manna sveitakeppni sem hægt er að mynda óháð kyni og aldri. Keppt er um minnstan samanlagðan tíma.
Mæting á hlaupsstað
Hlauparar þurfa að mæta í Gljúfrastofu, gestastofu þjóðgarðsins, í mynni Ásbyrgis. Tímasetning mætingar er mismunandi eftir vegalengd sem hlaupin er:
Hægt er að skipta um föt í þjónustuhúsi tjaldstæðanna.
Rútuferðir að rásmarki
Yfirleitt er farið á rútum að rásmarki á stöðunum þremur. Aðstæður við rásmark eru mismunandi en gert er ráð fyrir að eftir rútuferðina hafi hlauparar einhverja stund (10-20 mín.) til að liðka sig fyrir hlaupið. Engin búningsaðstaða er við rásmörk og ekki eru vatnssalerni við Hólmatungurásmark.
Þátttakendur geta skilið eftir merkta poka með hlífðarfötum oþh. í rútunni og nálgast þá við markið í Ásbyrgi að hlaupi loknu. Ekki er tekin ábyrgð á verðmætum í þessum pokum.
Hlaupaleiðin
Hlaupið er um stórbrotið land með útsýni yfir Jökulsár-gljúfur, þmt. Ásbyrgi. Óhætt er að þessi hlaupaleið eigi ekki sinn líka hvað umhverfið varðar. Hrjóstrugasti hluti leiðarinnar er leggurinn Dettifoss-Hólmatungur, en þar er hlaupið á sandi, klöppum og grófum melum. Fyrir ofan Hólmatungur taka við moldargötur í grónu landi og eftir því sem neðar dregur tekur kjarrlendi við. Vaða þarf yfir eina á, Stallá, en þar verða laxapokar fyrir þá sem vilja. Frá Rauðhólum neðan Hljóðakletta eru hlaupnar götur eftir gömlum farvegi Jökulsár, frá þeim tíma er Ásbyrgi myndaðist og er víða yfir klappir að fara. Síðasti hluti leiðarinnar liggur norður meðfram Ásbyrgi, eftir göngu-/fjárgötum í birkiskógi. Getur það reynst þreyttum fótum heldur tafsamur áfangi.
Drykkjarstöðvar
Boðið erupp á drykk (vatn/orkudrykk) með uþb. 5 km millibili á eftirfarandi stöðum: Við Dettifoss, norðan Hafragils, Hólmatungum, Stallá, Vesturdal, Kvíum, fyrir botni Ásbyrgis og við Tófugjá austan Ásbyrgis.



