2007
Jökulsárhlaup 2007 var haldið laugardaginn 28. júlí sl. í blíðskaparveðri. Að þessu sinni tóku þátt 65 hlauparar þátt í hlaupinu á móti 142 hlaupurum árið áður. Veðurspáin vikuna á undan var vægast sagt ekki hagstæð, en spáð var kulda og vætu. Þátttaka í viðburðum sem þessum ræðst alltaf á síðustu dögunum, þ.e. eftir að langtímaspáin er komin fram.
Hlaupið fór í alla staði vel fram, hlaupaveður gott og góður andi ríkti á svæðinu eins og ævinlega. Hlaupnar voru þrjár vegalengdir:
Dettifoss – Ásbyrgi 32,7 km.
Sigurvegarar voru í karlaflokki:
1. sæti: Sigurður Hansen, Reykjavík 2:28:20
2. sæti: Óskar Jakobsson, Reykjavík 2:34:15
3. sæti: Börkur Árnason, Reykjavík 2:38:00

Sigurvegarar í kvennaflokki:
- sæti: Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, Mosfellsbæ, 2:54:00
- sæti: Sigríður Einarsdóttir, Akureyri, 2:58:25
- sæti: Guðbjörg M. Björnsdóttir, Mosfellsbæ, 3:01:38

Hólmatungur – Ásbyrgi 21,2 km
Sigurvegarar í karlaflokki:
- sæti: Daníel Smári Guðmundsson, Reykjavík, 1:36:54
- sæti: Sigurjón Sigurbjörnsson, Reykjavík, 1:38:02
- sæti: Andri Steindórsson, Akureyri, 1:40:51

Sigurvegarar í kvennaflokki:
1.sæti: Fjóla Dröfn Guðmundsdóttir, Akureyri, 2:06:39
2.sæti: Inga María Hansen, Reykjavík, 2:28:04
3.sæti: Sandra Jónasdóttir, Hafnarfirði, 2:34:18

Vesturdalur – Ásbyrgi 13,2 km
Sigurvegarar í karlaflokki:
1.sæti: Brynjar Leó Kristinsson, Akureyri, 1:01:49
2.sæti: Einar Sigtryggsson, 1:07:03
3.sæti: Sindri Freyr Kristinsson (14 ára), Akureyri, 1:14:25

Sigurvegarar í kvennaflokki:
1.sæti: Sædís Ólafsdóttir, Garðabæ, 1:15:34
2.sæti: Sólveig Ása Árnadóttir, Akureyri, 1:18:01
3.sæti: Hildigunnur Svavarsdóttir, Akureyri, 1:18:32

Sveitakeppni:
Dettifoss-Ásbyrgi:
Tvær sveitir skráðu sig til keppni: Árbæjarskokk og Sveit Valþjófsstaða.
Árbæjarskokk sigraði á samanlögðum tíma 8:13:16.
Sveitina skipuðu: Óskar Jakobsson, 2:34:15
Hávar Sigurjónsson, 2:48:12
Rúnar Sigurðsson, 2:50:49

Vesturdalur-Ásbyrgi:
Tvær sveitir skráðu sig til keppni: Eyrarskokk og Mæðgurnar.
Eyrarskokk sigraði á samanlögðum tíma 4:03:23.
Sveitina skipuðu: Kristján Birkir Jónsson, 1:18:38
Helgi Þorbjörn Svavarsson, 1:22:10
Soffía Gísladóttir, 1:22:35

Sveitaverðlaun voru veitt: Lambalæri frá Fjallalambi.

Þegar Þórarinn í Vogum tók þátt í Jökulsárhlaup (frásögn Gunnars Jóhannessonar)



