Lífríki

Vatnajökulsþjóðgarður er þekktastur fyrir stórbrotið landslag sem náttúruöflin hafa mótað í gegnum árþúsundin. Í þessum stórkostlegu landslagsgerðum hafa skapast fjölbreytt skilyrði fyrir lífríkið, gróður og dýralíf. Skógur, mólendi, mýrar, tjarnir, lækir, ár, klettasyllur og gróðursnauðir sandar og melar eru allt dæmi um mismunandi búsvæði innan þjóðgarðsins.
Í þjóðgarðinum er það náttúran sem fær að þróast eftir sínum eigin lögmálum og við reynum að hafa þar sem minnst afskipti. Rétt eins og breytingar hafa orðið í gegnum árin þá mun náttúran áfram taka breytingum sem spennandi verður að fylgjast með.



