Kelduhverfi

VELKOMIN Í KELDUHVERFI – “ríki út af fyrir sig”.
Kelduhverfi liggur inn af botni Öxarfjarðar á Norðausturlandi. Næst sjónum eru víðáttumikilir "sandar" (Vestursandur) sem eru nú að mestu grónir. Þetta eru óshólmar Jökulsár á Fjöllum, mýrlent land, víða kjarri vaxið, með sjávarlónum, stöðuvötnum og ám. Síðan tekur við gamalgróið hraun og er byggðin nú öll á þessum forna hraunjaðri, enda liggur þjóðvegurinn þar. Landið hækkar síðan smátt og smátt til suðurs, vel gróin heiðarlönd, sums staðar með verulegum skógarleifum, sem ná um 15 km upp frá byggðinni. Lengst inn til landsins austanvert eru auðnir og melar enda landið komið í meira en 500 m hæð frá sjó.
Kelduhverfið (Kelduneshreppurinn) er alls um 700 ferkm. "Sandurinn" er um 100 ferkm, gróið land um 300 ferkm og auðnir og fjöll um 300 ferkm.
Í bók sinni Hverra manna segir Árni Óla:
“Náttúran sjálf hefur frá örófi alda afmarkað Kelduhverfi rækilega. Að austan er hin mikla elfir Jökulsá á Fjöllum, að sunnan Mývatnsöræfi, að vestan hár fjallgarður og að norðan opið haf. Innan þessara vébanda var það gjörsamlega einangrað. Það er eins og rækilega umgirtur landskiki á mótum Suður-Þingeyjarsýslu og Norður-Þingeyjarsýslu.
---- Kelduhverfi er í rauninni ríki út af fyrir sig, en ekki hluti af stærri heild, og því hefði farið best á því, að sýslurnar hefðu haft það sem skartgrip héraðsins þarna á milli sín.”
Í dag er Kelduhverfi auðvitað áfram ríki út af fyrir sig, sérstakt sveitarfélag með ríka sjálfstæðisvitund en þó með góð tengsl við nágranna sína bæði til vesturs og austurs. Eins og í mörgum öðrum sveitahreppum fækkaði íbúum jafnt og þétt á seinni helmingi síðustu aldar, en fjölgar nú aftur á ný.
Kelduhverfið er dæmigert íslenskt bændasamfélag. Hér hefur verið stundaður sauðfjárbúskapur fá aldaöðli og er enn í dag. En nýjar atvinnugreinar hafa haslað sér völl og ber þar hæst fiskeldi og ferðamannaþjónustu.
En Keldhverfingar hafa brasað við fleira en búhokur. Menningarlíf hefur oft staðið með miklum blóma og hefur getið af sér þjóðþekkta menntafrömuði, listmálara, tónlistarfólk, skáld og rithöfunda auk athafnaskálda.
Keldunes er í miðri sveit og þar var lengi þingstaður hreppsins. Keldunes er kennt við miklar uppsprettur, sem koma undan hraunjaðrinum og kallast nú Brunnar. En í fornöld voru slíkar uppsprettur nefndar keldur og af þessum keldum dregur bærinn og einnig sveitin nafn sitt. Kelduhverfi myndi því kallast Springfield á alþjóðamálinu.
Fyrir unnendur íslenskrar náttúru hefur Kelduhverfið upp á margt að bjóða. Þar er fyrst til að nefna Vatnajökulsþjóðgarð með sínum stórkostlegu náttúruperlum. Um hann getið þið fræðst hér á heimasíðunni. Fuglalíf er mjög fjölskrúðugt og fyrir fuglaskoðara er hér mikið að sjá. Silungurinn í Litlá og vötnunum þrem hefur dregið margan veiðimanninn í hverfið. Ekki má gleyma selnum sem syndir mót hörðum straumi Jökulsár og heldur þar löngum til. Hellar, gjár, skógar, heiðar, og svartur ægisandur ásamt fjallahringnum, allt þetta gerir Kelduhverfið að þeim skartgrip sem Árni Óla minntist á.
Hér á við að leyfa sveitarskáldinu okkar Þorfinni Jónssyni á Ingveldarstöðum að hafa lokaorðin.
| KELDUHVERFI | ||
| Inn frá botni Öxarfjarðar stendur okkar Kelduhverfis fagra sveit. Fjöllin skarta blá á báðar hendur og boða fleira að sjá í þessum reit. Ár og læki, vötn og velli slétta, vinleg býli, skóga og heiðalönd, þar sem einnig ægir lemur kletta eða raular lágt við sendna strönd. |
||
Hverfið prýða perlur náttúrunnar sem passa vel í rammann allt um kring. Undrasmíði Ásbyrgisins kunnar sem eins og hófspor myndar klettahring. Dettifoss á sveitarmörkum situr og syngur enn með þungum, dimmum róm Hljóðakletta höllin bergmál flytur í Hólmatungum fossahjal og blóm. |
||
Jökulsá sem gljúfrin hefur grafið og gefur okkur þetta undraland, stanslaust áfram streymir fram í hafið og stuttan spöl um urð og blakkan sand. Áin löngum örlaganna valdur okkar sveitar gegnum tímans haf. Straumur hennar stríður mjög og kaldur hið sterka afl sem bæði tók og gaf. |



