Kelduhverfi

Þetta er vefur Kelduhverfis

Atvinnulíf

Kelduhverfi er frá fornu fari hefðbundið landbúnaðarsvæði, en á liðnum áratugum hefur vægi hefðbundins landbúnaðar farið minnkandi.  Jafnframt hafa vaxið aðrar atvinnugreinar s.s. ferðaþjónusta og fiskeldi.  Sauðfjárrækt er meginþáttur hefðbundins landbúnaðar en auk þess er um hrossarækt að ræða og fleira.

Fiskeldisstöðin Rifós hefur verið stærsta fyrirtæki innan sveitarfélagsins um árabil, en Kelduhverfið er eitt besta svæðið á landinu undir slíka starfsemi.  Kemur þar m.a. til jarðhiti og ferskvatnsstaða.

Ferðaþjónusta hefur farið vaxandi í Kelduhverfi á undanförnum árum.  Gert er ráð fyrir að þessi vöxtur haldi áfram og eru miklar vonir bundnar við bættar samgöngur þegar lokið verður við að endurbyggja og klæða veginn fyrir Tjörnes á næsta ári.  Nokkur fyrirtæki í sveitarfélaginu byggja á ferðaþjónustu að einhverju eða öllu leyti, auk þess sem rekin er ferðaþjónusta bænda á nokkrum býlum.  Þannig getur hefðbundinn landbúnaður tengst öðrum atvinnugreinum og stutt hvort annað.

Vatnajökulsþjóðgarður er í Kelduhverfi og aðkoma að honum og upplýsingastofa er í Ásbyrgi.  Þjóðgarðurinn er mjög mikilvægur og útvegar nokkur sumarstörf auk fastra starfa.  Hann er auk þess helsta aðdráttarafl fyrir ferðafólk á svæðinu með öllum sínum náttúruperlum, svo sem Ásbyrgi, Hljóðaklettum og Dettifossi. Í undirbúningi er bygging Gljúfrastofu sem verður í senn, gestastofa þjóðgarðsins og fullkomin upplýsingamiðstöð fyrir hann og alla N-Þingeyjarsýslu.

Vegna legu Kelduhverfis sækja íbúar í einhverjum mæli vinnu til Húsavíkur eða Kópaskers og í fiskeldisstöð Silfurstjörnunnar í Öxarfirði.

Heimöx handverkshópur kvenna við Öxarfjörð er samstarfsvettvangur til að vinna ýmsa muni sem eru seldir ferðafólki og öðrum sem áhuga hafa.

Sumardvalarheimilið við Ástjörn er rekið yfir sumarmánuðina.


Í Kelduhverfi eru ýmis tækifæri til atvinnusköpunar.  Sérstaklega liggja tækifæri í ferðaþjónustunni  og mikil ónýtt tækifæri liggja í jarðhita og nægu ferskvatni.

 

 

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning