Ferðaþjónusta
Ferðaþjónusta í Kelduhverfi tengdist áður fyrr umferðinni um þjóðveginn milli Norður- og Austurlands, sem var um Kelduhverfi og meðfram Jökulsá að austan. Þá var rekin gisti- og veitingaþjónusta í Lindarbrekku um árabil. Eftir að Jökulsá var brúuð við Lindhöfða hjá Grímsstöðum á Fjöllum 1947 færðist umferðin um Mývatnsöræfi og Mývatnssveit. Síðan hefur ferðaþjónustan fyrst og fremst tengst náttúruskoðun í sveitinni og þá einkum skoðun furðusmíða Jökulsár á Fjöllum. Nú er þar Þjóðgarðurinn í Jökulsárgljúfrum, sem nú heitir Vatnajökulsþjóðgarður, sem var stofnaður fyrir 30 árum og hefur aðstaða ferðamanna verið bætt verulega eftir tilkomu hans.
Í Ásbyrgi er bensínsala, verslun og veitingaþjónusta sem opin er allt árið.
Á undanförnum árum hafa veiðimenn í auknum mæli heimsótt Kelduhverfið, bæði til veiða í Litlá og einnig á haustin í gæsa- og rjúpnaveiði.
Fjölskrúðugt fuglalíf dregur einnig að sér fleiri og fleiri ferðamenn.
Tvær bændagistingar eru í sveitinni, í Keldunesi og á Hóli auk ferðaþjónustunnar í Skúlagarði þar sem er félagsheimili sveitarinnar.
Stutt er í sundlaug í Lundi í Öxarfirði, en þar er einnig sumarhótel og tjaldsvæði.

(mynd af Jóhanni Svarfdælingi (risa) og Ingibjörgu Indriðadóttur frá Lindarbrekku))



